Misseri
Haust Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS) Hámarksfjöldi nemenda
40 Forkröfur
Æskilegt að ljúka á fyrstu önn sérhæfingar
Námskeiðslýsing
Markmið
Í lok námskeiðsins eiga þátttakendur að
hafa heildstæða mynd af notkun upplýsingatækni í skólastarfi og þeim þáttum sem einkenna og móta þá menningu og notkunarhefðir sem skapast við innleiðingu hennar (technology integration)
hafa þekkingu á því hvernig tölvufærni og tölvunotkun nemenda, ásamt viðhorfum þeirra til tölva, þróast innan skóla og utan
hafa þekkingu á möguleikum upplýsingatækni til að efla nám og kennslu
geta nýtt nýjustu upplýsingatækni í hugmyndavinnu og til að afla og vinna úr gögnum vegna fræðilegra skrifa
geta skoðað og greint skóla- og uppeldisstarf með opnum og gagnrýnum huga og miðlað reynslu sinni til annarra munnlega og skriflega með skýrum hætti
verða orðnir virkir þátttakendur í náms- og fagsamfélagi og áhugasamir um að vinna þróunarstörf á sviði upplýsingatækni
Inntak / viðfangsefni
Á námskeiðinu er fjallað um
áhrif upplýsingabyltingarinnar á menningu, uppeldi, menntun og skólastarf
námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi
skilgreiningar og kenningar sem tengjast notkun upplýsingatækni í námi og kennslu
innleiðingu tölva og upplýsingatækni í skólastarf (technology integration) í félags- og menningarlegu samhengi, kennsluhætti, símenntun kennara, hugbúnað og stafrænt námsefni
nemendur, færni þeirra og/eða læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni og tölvunotkun innan og utan skóla.
Vinnulag
Lestur og umræður um námskrá og stefnu, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þeir miðla reynslu sinni af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leggja sitt af mörkum við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.
Námsmat
Umræðuframlög (að hluta til unnin í hóp að hluta til einstaklingsvinna), 25%
Efnisleit og kynningar einstaklinga eða áhugahópa (verkefni má að hluta til vinna í hópi en það er ekki skylda), 25%
Verkefni sem byggist á gagnasöfnun (einstaklings- eða hópverkefni), 25%
Heimildaritgerð (einstaklingsverkefni), 25%
Sameina má síðasttöldu verkefnin tvö í eitt stórt 50% verkefni.
Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun
Braut / námsleið / kjörsvið
Framhaldsdeild, Uppeldis- og menntunarfræði – upplýsingatækni og miðlun[1]
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Skyldunámskeið
Misseri
Haust
Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS)
Hámarksfjöldi nemenda
40
Forkröfur
Æskilegt að ljúka á fyrstu önn sérhæfingar
Námskeiðslýsing
Markmið
Í lok námskeiðsins eiga þátttakendur að
Inntak / viðfangsefni
Á námskeiðinu er fjallað um
Vinnulag
Lestur og umræður um námskrá og stefnu, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þeir miðla reynslu sinni af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leggja sitt af mörkum við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.
Námsmat
- Umræðuframlög (að hluta til unnin í hóp að hluta til einstaklingsvinna), 25%
- Efnisleit og kynningar einstaklinga eða áhugahópa (verkefni má að hluta til vinna í hópi en það er ekki skylda), 25%
- Verkefni sem byggist á gagnasöfnun (einstaklings- eða hópverkefni), 25%
- Heimildaritgerð (einstaklingsverkefni), 25%
Sameina má síðasttöldu verkefnin tvö í eitt stórt 50% verkefni.Lesefni
Útdráttur námskeiðslýsingar á ensku.
[1] Ath. áður nefnt tölvu- og upplýsingatækni